Fyrsta nýja íbúðarhúsnæðið byggt til sölu á Seyðisfirði í langan tíma!

Nú styttist óðum að tímamótum hjá Helluhyl, og á Seyðisfirði öllum, því stefnt er að verklokum á Vallargötu 6 núna í síðasta ársfjórðungi 2026. Um er að ræða timburparhús á einni hæð þar sem hvor íbúð er 104 fermetrar með þremur svefnherbergjum.

Húsið er staðsett á frábærum stað í hjarta bæjarins á gamla fótboltavellinum – þar sem margir hafa spilað með, eða horft og hvatt Huginn í gegnum árin. Fótboltinn hefur nú vikið þar fyrir nýju íbúðalóðasvæði. Aðgengi fyrir alla var haft að leiðarljósi við hönnun hússins.

Margir hafa komið að og hjálpað til við framkvæmdina og hefur verið ánægjulegt að hafa brottflutta, innfædda og aðflutta með í verkinu. Nú sér fyrir endann á framkvæmdum þar sem áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar fyrir árslok. Það styttist því í að við getum sýnt myndir af tilbúinni íbúð og boðið í heimsókn, en þangað til höfum við teikningar og tölvugerðar myndir til að sýna.

Að verkefninu stendur byggingar- og ráðgjafafyrirtækið Helluhylur. Hópurinn á bak við fyrirtækið samanstendur af tveimur brottfluttum Seyðfirðingum (Jóhanni og Loga), einum aðfluttum (Braga) og einum brennandi aðdáanda fjarðarins (Hallgrími). Okkar helsta markmið er að hjálpa til við uppbyggingu í þessum yndislega bæ okkar með vönduðum nýbyggingum sem falla að hefðbundinni bæjarmynd, sem og áframhaldandi atvinnuuppbyggingu (meira um það síðar).

Við erum afar spenntir að bjóða upp á nýtt húsnæði og telst okkur til að um sé að ræða fyrsta húsið sem byggt er til sölu á Seyðisfirði í langan tíma.

Fylgstu með næstu vikurnar þar sem við kynnum nánar alla helstu kosti þessara eigna ásamt því að sýna meira frá lokaframkvæmdum og endanlegu útliti á Vallargötu 6.

Áfram Seyðisfjörður!