Á Seyðisfirði byggjum við einlyft parhús byggt úr timbri og hvor íbúð 104 fermetrar (bróttó) með þremur svefnherbergjum.

Útveggir eru klæddir grænmálaðri panelklæðningu sem fellur vel að umhverfinu. 

Hvítar útihurðar, gluggar og svalahurðar eru úr timbri með tvöföldu K-gleri og gefa klassískan blæ.

Gólfplötur eru staðsteyptar og með hita í gólfi.

Þak er hefðbundið uppstólað risþak með bárujárnsklæðningu.

Að innan (104 m²)

 

Húsinu verður skilað fullbúinni með gólfefnum. Flísar verða á forstofu, baðherbergi og þvottahúsi og allt annað parketlagt. Veggir eru málaðir. Reykskynjarar, slökkvitæki og læstur lyfjaskápur fylgja.

Forstofan er með fataskáp og flísum á gólfi.

Eldhús með KVIK innréttingu. Spanhelluborð og ofn í vinnuhæð og stálvaskur með einnar handar blöndunartækjum. Innbyggð uppþvottavél í innréttingu.  Kæli og frystiskápur.  Háfur yfir eldavél og ljós (fylgja ekki).

Stofan er opin og samtengd eldhúsi og forstofugangi.

Svefnherbergin eru þrjú og öll með fataskápum.
Björgunarop eru í öllum svefnherbergjum.

Baðherbergi með flísum á gólfi, sturta, vask innrétting og speglaskápur og vegghengt salerni. Veggir baðherbergis eru flísalagðir.

Þvottaherbergi er með flísum á gólfi og klætt rakavörðum gipsplötum og innrétting fyrir 2 vélar og vask.

Gólfhiti er í öllum rýmum.

Geymsla sem er með flísum á gólfi og gips klætt að innan. Veggir eru málaðir. Aðgengi að geymslunni er að utan og hentar því vel fyrir hjóla- og vagnageymslu.

Útgengt er frá stofu út á timburverönd.

 

Að utan (lóð 760 m²)

Gangstétt framan við húsið er hellulögð, gróðurbeð grófjöfnuð án gróðurs, aðrir hlutar lóðar eru þökulagðir.

Plan við inngang að íbúðum er hellulagt. 

Gert er ráð fyrir bílastæði fyrir hreyfihamlaða og möguleiki á tengingu við rafmagn fyrir bíla. 

Lóðin er sameiginleg 760 m² leigulóð í eigu Múlaþings. 

Staðsetning

Vallargata 6 er staðsett í hjarta bæjarins, á gamla fótboltavellinum, og býður upp á nálægð við alla helstu þjónustu og fallegt umhverfi.

Vallargata 6 – afhending sumarið 2026

Framkvæmdir við Vallargötu 6 ganga vel og er áætlað að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar sumarið 2026. Um er að ræða nútímalegar og vel hannaðar íbúðir á góðum stað.

Hlutdeildarlán í boði

Kaupendum stendur til boða að nýta hlutdeildarlán, sem getur auðveldað fyrstu skrefin inn á fasteignamarkaðinn og lækkað fjármögnunarþörf.

Hefurðu áhuga á Vallargötu 6

Hafðu samband við Hallgrím fyrir frekari upplýsingar um eignina eða hefja kaupferli.

Hallgrímur Ingólfsson
Fjármálastjóri
893-8303
hallgrimur@helluhylur.is

Hafðu samband

 Helluhylur ehf. 
 Múlavegur 19
 710 Seyðisfjörður